Fotbolti.net
21.02.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

England: Léleg færanýting á London Stadium

England: Léleg færanýting á London Stadium
Canon

Mynd: West Ham

West Ham 0 - 0 Bournemouth
West Ham United og Bournemouth áttust við í miklum baráttuleik í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Fallbaráttulið West Ham var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta færin sem sköpuðust.

Seinni hálfleikurinn var opinn og skemmtilegur þar sem bæði lið komust nálægt því að skora, en einhvern veginn rataði boltinn aldrei í netið.

Rayan átti skot í stöng fyrir Bournemouth en Hamrarnir fengu fleiri og betri færi, en áttu í basli með að hitta á rammann.

Mads Hermansen og Djordje Petrovic áttu góðar vörslur þegar þeirra var þarfnast og héldu báðir hreinu.

Lokatölur urðu því 0-0 og er West Ham núna tveimur stigum frá Nottingham Forest sem situr í öruggu sæti.

Bournemouth er áfram í efri hlutanum, með 38 stig eftir 27 umferðir - sjö stigum frá meistaradeildarsæti.
England: Léleg færanýting á London Stadium
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.