Auðvelt fyrir Hafnir
Það fóru tveir leikir fram í C-deild Lengjubikars karla í dag þar sem Álafoss lagði Árborg að velli í öðrum leik nýs aðalþjálfara.
Magni Jóhannes Þrastarson er nýlega tekinn við stjórn hjá Álafossi en hann er efnilegur þjálfari sem hefur starfað hjá Val á undanförnum árum.
Valgeir Viðar Jakobsson var atkvæðamestur í sigrinum þar sem hann skoraði tvennu og urðu lokatölur 2-3.
Álafoss er með sex stig eftir tvær umferðir undir stjórn Magna og skilur Árborg eftir með þrjú stig.
Á sama tíma skoruðu Hafnir fjögur mörk í þægilegum sigri á Afríku.
Liðin mættust í Nettóhöllinni og komust Hafnir í tveggja marka forystu áður en Afríka minnkaði muninn. Sigur heimamanna virtist þó aldrei í hættu eftir að Reynir Aðalbjörn Ágústsson endurheimti tveggja marka forystu snemma í síðari hálfleik.
Hafnir eiga sex stig eftir tvær umferðir á meðan Afríka er án stiga.
Árborg 2 - 3 Álafoss
0-1 Valgeir Viðar Jakobsson ('11)
1-1 Benjamín Árni Sigurðsson ('32)
1-2 Gunnar Smári Jónsson ('33)
2-2 Jökull Hermannsson ('48)
2-3 Valgeir Viðar Jakobsson ('69)
Hafnir 4 - 1 Afríka
1-0 Kristófer Orri Magnússon ('25)
2-0 Paul Kampely Sylva ('42)
2-1 Anass Nikolai Ninir ('45)
3-1 Reynir Aðalbjörn Ágústsson ('51)
4-1 Anton Freyr Hauks Guðlaugsson ('87)
Athugasemdir



