Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 23:46
Ívan Guðjón Baldursson
Rosenior kennir einum leikmanni um jöfnunarmarkið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liam Rosenior þjálfari Chelsea var sár eftir jafntefli gegn fallbaráttuliði Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Chelsea náði forystunni snemma leiks með marki frá Joao Pedro en tókst ekki að tvöfalda forystuna þrátt fyrir góð færi í fyrri hálfleik.

Gestirnir frá Burnley mættu tvíefldir til leiks í seinni hálfleikinn og úr varð afar jafn slagur sem bauð þó ekki upp á mikið af færum.

Wesley Fofana var rekinn af velli með tvö gul spjöld á 72. mínútu og héldu tíu leikmenn Chelsea út allt þar til í uppbótartíma, þegar Zian Flemming fékk frían skalla eftir hornspyrnu og skoraði örugglega.

Undir lok fréttamannafundarins eftir lokaflautið var Rosenior spurður út í hvað klikkaði í jöfnunarmarkinu, sérstaklega í ljósi þess að hann hafði skipt hávöxnum varnarmönnum inn af bekknum í seinni hálfleik til að verjast föstum leikatriðum.

„Það var dekkningin sem klúðraðist," sagði Rosenior, augljóslega hundsvekktur.

„Við skipulögðum föstu leikatriðin vel og við vitum að (Zian) Flemming er þeirra hættulegasti skallamaður. Það var leikmaður sem fékk þetta verkefni að dekka Flemming og hann dekkaði rangan leikmann.

„Ég ætla ekki að nefna nein nöfn því ég mun alltaf verja leikmennina mína og aldrei kasta þeim undir rútuna, ég mun takast á við þetta á æfingasvæðinu í vikunni."

Athugasemdir
banner
banner
banner