Fotbolti.net
21.02.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn í dag - Orri gegn botnliðinu og Madrídarliðin mæta til leiks

Spánn í dag - Orri gegn botnliðinu og Madrídarliðin mæta til leiks
Canon

Mynd: EPA

Orri Steinn Óskarsson og félagar í liði Real Sociedad eiga fyrsta leik dagsins í efstu deild spænska boltans á heimavelli gegn botnliði Real Oviedo.
Orri Steinn hefur verið að koma inn af bekknum í hverjum leik eftir endurkomu úr meiðslum og er búinn að skora tvö mörk í síðustu fimm innkomum. Sociedad er með 31 stig eftir 24 umferðir, fjórum stigum frá evrópusæti.

Antony og félagar í sterku liði Real Betis taka svo á móti fallbaráttuliði Rayo Vallecano og geta reynt að blanda sér í meistaradeildarbaráttuna með sigri. Betis er aðeins fjórum stigum á eftir Atlético Madrid sem situr í síðasta meistaradeildarsætinu.

Topplið Real Madrid getur komist í fimm stiga forystu með sigri á útivelli gegn Osasuna áður en Atlético spilar lokaleik kvöldsins við spútnik lið Espanyol sem hefur gengið hörmulega að undanförnu.

Atlético þarf á sigri að halda eftir tvo tapleiki og jafntefli í síðustu þremur deildarleikjum. Bið Espanyol eftir sigri hefur hingað til verið meira en tvöfalt lengri heldur en hjá andstæðingum kvöldsins.

Espanyol er með tvö jafntefli og fimm töp í síðustu sjö umferðum, en liðið situr ennþá í evrópusæti sem stendur. Það gæti þó breyst á morgun.

Spánn: La Liga
13:00 Real Sociedad - Real Oviedo
15:15 Real Betis - Rayo Vallecano
17:30 Osasuna - Real Madrid
20:00 Atletico Madrid - Espanyol
Spánn í dag - Orri gegn botnliðinu og Madrídarliðin mæta til leiks
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Celta10+312
9Athletic9+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna9-811
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.