Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Osasuna vann Real Madrid í fyrsta sinn í 15 ár
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Osasuna 2 - 1 Real Madrid
1-0 Ante Budimir ('38 , víti)
1-1 Vinicius Junior ('73 )
2-1 Raul Garcia ('90 )

Það er gríðarleg spenna í spænsku titilbaráttunni þar sem Real Madrid var að misstíga sig eftir óvænt tap Barcelona í síðustu umferð.

Real Madrid heimsótti Osasuna í dag og lenti í miklum erfiðleikum. Leikurinn var nokkuð jafn og náðu heimamenn forystunni með marki úr vítaspyrnu á 38. mínútu. Ante Budimir skoraði örugglega eftir klaufalegt brot Thibaut Courtois innan teigs.

Real Madrid reyndi að skipta um gír eftir leikhlé en þeir fundu ekki taktinn. Heimamenn í liði Osasuna voru grimmir og gáfu ekki tommu eftir úti á vellinum. Þeir voru óhræddir við að pressa Madrídinga og sækja á þá og sköpuðu bæði liðin sér færi áður en Vinícius Júnior jafnaði metin.

Vinícius skoraði af stuttu færi eftir glæsilegan undirbúning frá Federico Valverde, sem prjónaði framhjá fjórum varnarmönnum áður en hann gaf boltann fyrir.

Staðan var jöfn og reyndu bæði lið að sækja sigurmark á lokakaflanum. Hvorugt lið skapaði sér mikið fyrr en Raúl García skoraði glæsilegt sigurmark eftir frábæra hápressu á 90. mínútu.

Gestirnir í liði Real voru að dóla sér með boltann í vörn svo heimamenn ákváðu að keyra upp í hápressu sem kom Madrídingum að óvörum. Þeir töpuðu boltanum tvisvar sinnum á hættulegu svæði sem varð til þess að García fékk boltann og lék alltof auðveldlega á Raúl Asencio áður en hann kláraði með marki.

Þetta reyndist sigurmarkið. Lokatölur 2-1 fyrir Osasuna, en þetta er sögulegur sigur fyrir félagið og sá fyrsti gegn Real Madrid síðan í janúar 2011.

Real Madrid er með tveggja stiga forystu á toppi La Liga og getur misst sætið til Barcelona sem tekur á móti fallbaráttuliði Levante á morgun.

Osasuna er í efri hluta deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá sæti í evrópukeppni.
Athugasemdir
banner
banner