Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 21. maí 2019 12:30
Elvar Geir Magnússon
Kante mættur til æfinga hjá Chelsea
N'Golo Kante.
N'Golo Kante.
Mynd: Getty Images
N'Golo Kante er mættur aftur til æfinga eftir meiðsli en hann meiddist aftan í læri í leik gegn Watford fyrr í þessum mánuði.

Maurizio Sarri sagði eftir leikinn að hann hefði gert mistök með því að láta Kante spila leikinn.

En það eru gleðitíðindi fyrir Chelsea og Sarri að Kante sé mættur aftur til æfinga en Chelsea leikur gegn Arsenal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á miðvikudaginn í næstu viku.

Sarri hefur aldrei unnið stóran titil á stjóraferli sínum en vangaveltur eru í gangi um hvort Frank Lampard verði ráðinn stjóri Chelsea í sumar.

Talað er um að Ítalíumeistarar Juventus vilji fá Sarri.
Athugasemdir
banner
banner