Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. maí 2020 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Fólk talar um Pogba og það fer í taugarnar á mér"
Paul Pogba er umræddur leikmaður.
Paul Pogba er umræddur leikmaður.
Mynd: Getty Images
Andre Gray, sóknarmaður Watford, segir að gagnrýni á Paul Pogba, miðjumann Manchester United, fari í taugarnar á sér.

Pogba var keyptur aftur til Manchester United frá Juventus sumarið 2016 og hefur tími hans hjá Rauðu djöflunum einkennst af hæðum og lægðum.

Miklar væntingar hafa verið gerðar til Pogba og þegar hlutirnir hafa ekki gengið upp hjá honum þá hefur gagnrýnin verið mikil. Hann virðist vera með stórt skotmark á baki sínu frá hinum ýmsu knattspyrnusérfræðingum, en það skilur Gray ekki. Hann kemur Pogba til varnar.

„Fólk talar um Pogba og það fer í taugarnar á mér," sagði Gray við Threesixtytv. „Ég spilað fjórum eða fimm sinnum gegn honum og í hvert einasta skipti kemst enginn nálægt honum."

Pogba hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili, en hann verður væntanlega klár í slaginn ef enska úrvalsdeildin fer aftur af stað í næsta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner