Í dag fór einn leikur fram í Bestu Deild Karla. Það voru ÍBV sem kíktu til Akraness og mættu ÍA í stór skemmtilegum leik sem endaði með 2-2 jafntefli, sá fyrsti í 8.umferð.
ÍBV á botninum fyrir leik aðeins með eitt stig sem þeir sóttu í fyrstu umferð. Eitt stig var sagan í dag en stop á taphrinu kætir liðið.
Aleksandar Linta var sáttur eftir leik og hafði þetta að segja:
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 2 ÍBV
„Ég er sáttur fyrir hönd leikmanna minna, við höfum verið 2-0 undir áður á tímabilinu og ekki fengið neitt þannig þetta eru verðlaun fyrir vinnun sem þeir hafa sett í þetta."
„Þetta var erfiður leikur, við vorum þéttir og skipulagðir í fyrri hálfleik. Sköpuðum eitthvað og hefðum mögulega geta tekið forystuna. Síðan byrjar seinni háfleikurinn og fáum á okkur tvö mörk mjög snemma. En ég veit karakterinn í hópnum mínum, við gefumst aldrei upp og það er planið. Þeir trúa að þeir geti komið tilbaka og stíga upp sem þeir gerðu og þeir eiga heiðurinn á þessu."
Mikið hefur verið fjallað um markmannsstöðuna og síðan nýlega vaknaðar spurningar um tvo Serba sem voru utan hóps í dag hjá ÍBV. Í leiknum í dag fékk Marcel Zapytowski rautt fyrir leiktöf á 90.mínútu, en sumir hafa viljað sjá mun meira af honum í sumar en Ari i Haraldstovu hefur verið í rammanum nýlega.
„Það er auðvitað smá áhyggjuefni því við erum bara með tvo markmenn að hann fái rautt, sá ekki alveg hvað gerðist en ef hann á þetta skilið þá er það bara þannig. Hann var í augnaðgerð útaf hann fékk eitthvað járn í augað í vinnunni sinni."
„Ég vel hópinn og þeir eru ekki með í dag (Filip og Milan)."
Spurður hvort þeir munu sjást aftur í treyju ÍBV svaraði Linta: „Við munum sjá til. Engum er neinu lofað, ég vil og held að ég meðhöndli og læt jafnt gilda um alla. Ef ég segi mönnum að þeir spili þá spila þeir en ef ég segi að þeir spili ekki þá munu þeir ekki spila. Það gildir ekki bara um þá tvo heldur alla."
Framundan hjá ÍBV er heimaleikur gegn Keflavík.
„10 dagar, nokkrir til að hvílast og svo undirbúa okkur. Verður eins og allir aðrir leikir erfiðir en eins og í öllum leikjum munum við reyna að vinna. Sækja góða frammistöðu og frá henni fáum við úrslitin."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.





















