21.05.26 - 17:03
Kári Snorrason
Arteta var úti í garði að grilla þegar Arsenal varð meistari

Englandsmeistarinn Arteta.

Mynd: EPA

Englandsmeistarinn Arteta.

Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segist hafa frétt af Englandsmeistaratitli liðsins frá tárvotum syni sínum á meðan hann var að grilla úti í garði heima hjá sér.
Arteta ákvað að horfa ekki á viðureign Bournemouth og Manchester City þrátt fyrir að leikurinn hafi tryggt Arsenal fyrsta Englandsmeistaratitil liðsins í 22 ár.
Arteta ákvað að horfa ekki á viðureign Bournemouth og Manchester City þrátt fyrir að leikurinn hafi tryggt Arsenal fyrsta Englandsmeistaratitil liðsins í 22 ár.
Leikmenn Arsenal komu saman á æfingasvæðinu til að fylgjast með leiknum. Í viðtali við BBC segir Arteta hafa átt að horfa á leikinn með liðinu en sagðist ekki getað komið með orkuna sem hann vildi.
„Þess í stað fór ég heim. Ég fór út í garð, kveikti eld og byrjaði að grilla. Ég horfði ekki neitt á leikinn. Ég heyrði bara læti úr stofunni og allt í einu opnaði elsti sonur minn garðhurðina og hljóp til mín grátandi og sagði að við værum meistarar,“ sagði sá spænski.
Arteta sagðist einnig hafa hringt í Andoni Iraola, stjóra Bournemouth og æskuvin sinn, eftir leikinn til að þakka honum.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |