ÍA 2 - 2 ÍBV
1-0 Gísli Laxdal Unnarsson ('47)
2-0 Gísli Eyjólfsson ('51)
2-1 Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('67)
2-2 Róbert Elís Hlynsson ('77)
1-0 Gísli Laxdal Unnarsson ('47)
2-0 Gísli Eyjólfsson ('51)
2-1 Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('67)
2-2 Róbert Elís Hlynsson ('77)
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 2 ÍBV
Það var mikið fjör þegar ÍA og ÍBV áttust við í eina leik dagsins í Bestu deild karla.
Staðan var markalaus eftir afar líflegan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu frábær færi til að skora, en boltinn rataði ekki í netið. Heimamenn komust næst því að taka forystuna þegar Róbert Elís Hlynsson bjargaði á marklínu.
Skagamenn komust yfir í upphafi síðari hálfleiks þegar Gísli Laxdal Unnarsson skoraði glæsimark eftir hornspyrnu. Hann fékk boltann fyrir utan vítateig og setti hann undir samskeytin.
Fjórum mínútum síðar tvöfölduðu heimamenn forystuna með skyndisókn eftir hornspyrnu á hinum enda vallarins. Gísli Eyjólfsson kláraði með góðu marki eftir samspil Markúsar Páls Ellertssonar og Hauks Andra Haraldssonar, yngri bræðra tveggja af bestu fótboltamönnum íslenska landsliðsins í dag.
Aleksandar Linta gerði tvöfalda skiptingu eftir seinna markið sem átti eftir að reynast mikilvæg. Halldór Jón Sigurður Þórðarson kom inn af bekknum og minnkaði muninn skömmu síðar þegar hann fylgdi aukaspyrnu Vicente Valor eftir með marki af stuttu færi. Vicente setti boltann undir varnarvegg Skagamanna og varði Jón Sölvi Símonarson boltann út í teiginn.
Þetta mark kom á 67. mínútu og tíu mínútum síðar jafnaði Róbert Elís metin. Eyjamenn unnu boltann framarlega á vellinum eftir innkast Skagamanna. Halldór Jón náði snertingu á boltann sem datt fyrir Róbert og staðan orðin jöfn, 2-2.
Bæði lið sýndu mikinn vilja til að gera sigurmark en það vantaði upp á gæðin. Hvorugu liði tókst að skapa mikla hættu á lokakaflanum svo niðurstaðan varð 2-2 jafntefli.
Liðin áttust við í fyrsta leik áttundu umferðar deildartímabilsins. Skagamenn eiga 9 stig á meðan Eyjamenn sitja eftir á botninum með 2 stig.


