Fotbolti.net
21.05.26 - 09:20
Elvar Geir Magnússon

Kongó færir æfingabúðir sínar fyrir HM vegna ebólufaraldurs

Kongó færir æfingabúðir sínar fyrir HM vegna ebólufaraldurs
Canon

Mynd: EPA

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó hefur fært æfingabúðir sínar fyrir HM til Belgíu en þær áttu upphaflega að vera í höfuðborg Kongó, Kinsasa.

Ebólufaraldur geisar í austurhluta landsins og talið að 139 hafi látist.

Ebóla er sjaldgæfur en bráðsmitandi og oft banvænn veirusjúkdómur. Útbreiðslan er það mikil að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lýst faraldrinum sem alþjóðlegu neyðarástandi og kallaði saman neyðarfund.
Kongó er að búa sig undir sitt fyrsta heimemsitaramót síðan 1974 og mun spila vináttulandsleik gegn Danmörku í Liege í Belgíu þann 3. júní.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.