Fotbolti.net
21.05.26 - 16:38
Elvar Geir Magnússon

Maguire miður sín - Ekki valinn í HM hópinn

Harry Maguire í landsleik.

Harry Maguire í landsleik.

Canon

Mynd: EPA

Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, staðfestir á Instagram að hann hafi ekki verið valinn í 26 manna landsliðshóp Englands fyrir HM. Hópurinn hefur ekki verið formlega staðfestur en Thomas Tuchel er búinn að ákveða sig.

„Ég var viss um að ég hefði getað spilað stórt hlutverk í sumar fyrir þjóð mína eftir þetta tímabil sem ég hef átt. Ég er bæði miður mín og í áfalli yfir ákvörðuninni. Ég óska leikmönnunum alls hins besta," segir Maguire
Einnig mun Luke Shaw, liðsfélagi Maguire, ekki vera í hópnum. Dan Burn hjá Newcastle og Nico O'Reilly hjá Manchester City eru valdir framyfir hann.

Landsliðshópur Englands verður opinberaður á morgun. Fikayo Tomori, varnarmaður AC Milan, verður heldur ekki í hópnum samkvæmt frétt BBC.

Í sömu frétt segir að Noni Madueke, leikmaður Englandsmeistara Arsenal, verði hinsvegar í hópnum með liðsfélögum sínum Bukayo Saka og Declan Rice.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.