Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Viktor Bjarki meiddist - Gerði rangstöðumark gegn Ajax
Vonum að meiðsli Viktors Bjarka séu ekki alvarleg.
Vonum að meiðsli Viktors Bjarka séu ekki alvarleg.
Mynd: EPA
Rúnar Alex er varamarkvörður FCK.
Rúnar Alex er varamarkvörður FCK.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Brynjólfur kom boltanum í netið en það taldi ekki.
Brynjólfur kom boltanum í netið en það taldi ekki.
Mynd: Groningen
Það komu fjórir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í Evrópu þar sem Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar í mikilvægum úrslitaleik.

FCK átti mikið vonbrigðatímabil í dönsku deildinni og endaði afar óvænt í neðri hlutanum eftir tvískiptingu í vor.

Það vill svo heppilega til fyrir stórveldið að besta liðið í neðri hlutanum fær að spila umspilsleik um Sambandsdeildarsæti við liðið sem endar í fjórða sæti í efri hlutanum. Þess vegna fékk Kaupmannahöfn leik við Bröndby í dag.

Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK en þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik. Staðan var jöfn í tíðindalitlum leik en hlutirnir breyttust um miðbik síðari hálfleiks þegar leikmaður Bröndby fékk að líta beint rautt spjald.

FCK refsaði með marki og tókst tíu leikmönnum Bröndby að kreista fram jöfnunarmark skömmu síðar, svo leikurinn fór í framlengingu.

Youssoufa Moukoko var skipt inn á lokakafla leiksins og átti hann eftir að ráða úrslitum í framlengingunni. Hann endurheimti forystuna með marki undir lok fyrri hálfleiks en tíu leikmenn Bröndby voru ótrúlega seigir og náðu að setja boltann í netið í síðari hálfleik. Markið var þó ekki dæmt gilt eftir athugun í VAR, vegna naumrar rangstöðu. Moukoko innsiglaði sigurinn nokkrum mínútum síðar svo lokatölur urðu 1-3.

Kaupmannahöfn vann því umspilsleikinn og tryggði sér þar með sæti í forkeppni Sambandsdeildarinnar á næstu leiktíð. Rúnar Alex Rúnarsson var ónotaður varamaður.

Í efstu deild í Hollandi kom Brynjólfur Andersen Willumsson inn af bekknum í fyrri hálfleik fyrir meiddan liðsfélaga sinn er Groningen tapaði gegn Ajax í umspili um sæti í Sambandsdeildinni.

Ajax komst í tveggja marka forystu þegar Brynjólfur hélt hann hefði minnkað muninn, en markið ekki dæmt gilt vegna naumrar rangstöðu.

Lokatölur urðu 2-0 og spilar Ajax annað hvort við Utrecht eða Heerenveen í úrslitaleik um Sambandsdeildarsæti.

Júlíus Magnússon lék allan leikinn í jafntefli hjá Elfsborg í sænska boltanum og fékk Ari Sigurpálsson að spila síðasta hálftímann.

Elfsborg gerði 1-1 jafntefli við ríkjandi meistara Mjällby þrátt fyrir að hafa sýnt yfirburði á heimavelli. Elfsborg er með 16 stig eftir 9 umferðir, tveimur stigum meira heldur en meistararnir.

Að lokum var Davíð Kristján Ólafsson ónotaður varamaður í tapi hjá AEL Larissa gegn Kifisia í lokaumferð gríska deildartímabilsins. Larissa var stærðfræðilega fallið niður í næstefstu deild fyrir umferðina og því skipti leikurinn í dag litlu máli.

Bröndby 1 - 3 FCK

Ajax 2 - 0 Groningen

Elfsborg 1 - 1 Mjallby

Kifisia 3 - 2 AEL Larissa

Slapp
banner