Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. júní 2021 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Selfoss og Breiðablik: Engu breytt frá tapleikjum
Selfoss er á toppnum í Pepsi Max.
Selfoss er á toppnum í Pepsi Max.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er sannkallaður stórleikur í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld þar sem topplið Selfoss tekur á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Breiðablik.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarliðin fyrir stórleik kvöldsins eru klár og má sjá þau hér að neðan.

Síðasti leikur Breiðablik var gegn Keflavík og tapaði Kópavogsliðið óvænt þar, 1-3. Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Blika, gerir samt sem áður engar breytingar á byrjunarliði sínu.

Selfoss tapaði einnig síðasta leik sínum, gegn ÍBV. Selfoss heldur sig við sama lið og þar.

Byrjunarlið Selfoss:
1. Benedicte Iversen Haland (m)
6. Bergrós Ásgeirsdóttir
9. Eva Núra Abrahamsdóttir
10. Barbára Sól Gísladóttir
15. Unnur Dóra Bergsdóttir
21. Þóra Jónsdóttir (f)
22. Brenna Lovera
23. Emma Kay Checker
24. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
26. Hólmfríður Magnúsdóttir
27. Caity Heap

Byrjunarlið Breiðablik:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Taylor Marie Ziemer
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
16. Tiffany Janea Mc Carty
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Leikir kvöldsins:
18:00 Stjarnan - ÍBV
18:00 Valur - Þór/KA
20:00 Selfoss - Breiðablik
20:00 Þróttur R. - Fylkir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner