Fotbolti.net
17.06.26 - 11:10
Elvar Geir Magnússon

Freysi mætir Man Utd í júlí

Freyr Alexandersson mætir Michael Carrick í næsta mánuði.

Freyr Alexandersson mætir Michael Carrick í næsta mánuði.

Canon

Mynd: Samsett/EPA

Freyr Alexandersson er nýr aðalþjálfari hjá Rosenborg en félagið tilkynnti þetta í morgun. Einn af fyrstu leikjum Freys sem þjálfari norska liðsins verður gegn Manchester United, einu stærsta félagi heims.

Um er að ræða æfingaleik sem verður á Lerkendal, heimavelli Rosenborgar, þann 24. júlí. Michael Carrick og lærisveinar mæta til Þrándheims í undirbúningi sínum fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.
Freyr tekinn við Rosenborg (Staðfest)
TENGT EFNI

Freyr tekinn við Rosenborg (Staðfest)

Nú er frí í norsku deildinni þar sem landslið þjóðarinnar er að taka þátt í heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Fyrsti deildarleikur Freys með Rosenborg verður gegn Kristiansund 12. júlí og svo mætir liðið Start þann 18. júlí, áður en leikið verður gegn Manchester United.

Rosenborg er næstneðst í norsku úrvalsdeildinni með aðeins níu stig eftir ellefu leiki og það er verk að vinna fyrir Frey.
Lerkendal, heimavöllur Rosenborgar.

Lerkendal, heimavöllur Rosenborgar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.