21.07.15 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Matthew Ryan til Valencia (Staðfest)

Matthew Ryan er farinn til Valencia

Mynd: Getty Images

Matthew Ryan er farinn til Valencia

Mynd: Getty Images
Valencia hefur staðfest kaup á ástralska markverðinum, Matthew Ryan frá Club Brugge, en talið er að kaupverðið sé um sjö milljónir evra.
Þessi 23 ára gamli markörður skrifaði undir sex ára samning við Valencia.

Valencia hefur verið að leita sér að nýjum markverði eftir að Diego Alves hlaut alvarleg hnémeiðsli undir lok síðasta tímabils.
\"Ég er mjög ánægður að vera genginn til liðs við jafn stórt félag og Valencia. Þetta er mjög stórt skref á mínum ferli,\" sagði Ryan eftir að hann skrifaði undir.
\"Valencia er félag með góða leikmenn innanborðs, sem voru frábærir á síðasta tímabili. Okkar markmið er að tryggja okkur sæti í Meistardeildinni.\"

Heimild: Valencia