Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 21. júlí 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Aston Villa reynir að fá Leon Bailey
Aston Villa hefur áhuga á Leon Bailey.
Aston Villa hefur áhuga á Leon Bailey.
Mynd: EPA
Aston Villa hefur áhuga á Leon Bailey, leikmanni Bayer Leverkusen. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við þýska félagið og er metinn á milli 25 og 30 milljónir punda.

Dean Smith vill fá inn vængmann en Trezeguet er að jafna sig á hnémeiðslum og félagið ku vera tilbúið að hlusta á tilboð í Anwar El Ghazi.

Þessi 23 ára leikmaður gekk í raðir Leverkusen frá Genk 2017 og hefur reglulega verið orðaður við ensk félög.

Hann hefur skorað fimmtán mörk og átt ellefu stoðsendingar í 40 leikjum fyrir Leverkusen.

Villa er með stórar áætlanir fyrir gluggann, félagið hefur þegar fengið Emi Buendia frá Norwich og Ashley Young kom á frjálsri sölu. Þá hefur tveimur tilboðum Villa í Emile Smith Rowe verið hafnað.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner