Fotbolti.net
21.07.26 - 23:03
Andri Stefánsson

Matthías: Pressan slitnaði og Breiðablik refsaði okkur

Auglýsing
Matthías var ósáttur eftir leik

Matthías var ósáttur eftir leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Valur og Breiðablik áttust við í Bestu deild kvenna í kvöld. Breiðablik unnu sannfærandi 7-1 sigur. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Matthías Guðmundsson sem var svekktur eftir leik.
„Þetta var mjög þungt tap. Leikplanið gekk ekki upp, við slitnuðum allt of mikið og Breiðablik er það gott lið að það nýtti sér það auðveldlega,“ sagði Matthías eftir leik.

Valur hafði aðeins fengið á sig 14 mörk í fyrstu ellefu leikjunum fyrir viðureignina en fékk sjö í þessum leik. Hann var spurður út í leikplanið.

„Leikplanið var að vera þéttari og fara í pressu sem lið. Pressan slitnaði, við fórum ekki allar á sama tíma og þegar það gerist verður pressan lélegasta vörn í heimi. Annaðhvort fara allir í hana eða enginn.“

Valur er í erfiðri stöðu í deildinni en hann sagðist hafa fulla trú á því að liðið gæti snúið gengi sínu við.

„Ég hef fulla trú á þessu liði. Ég hef sagt við liðið frá því að við settum saman hópinn að ég tel og veit að þetta lið getur snúið genginu við. Það er mikið undir okkur sjálfum komið hvar við erum staddar og við þurfum að sýna betri frammistöðu til að snúa þessu við.“

Hann var einnig spurður út í fyrsta leik Emmu með liðinu.

„Frábært. Hún kom sterk inn. Mér fannst Ragnheiður líka mjög góð. Það er það jákvæða sem ég tek út úr þessu. Seinni hálfleikurinn var miklu betri en sá fyrri. Pressan leit betur út, það var þéttara á milli allra lína og leikmanna og gekk betur að loka á andstæðingana. Það var ekki þannig í fyrri hálfleik.“

Að lokum var hann spurður út í útileikinn gegn Fram í næstu umferð.

„Þetta verður hörkuleikur. Við þurfum að standa saman, ræða vel saman í vikunni og ákveða að við ætlum að snúa þessari stöðu við.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.