Einar Guðna eftir langþráðan sigur: Ég vissi að hún myndi verja vítið

Einar Guðnason var gríðarlega ánægður með baráttu Víkings og frammistöðu Telmu í 1-0 sigri á FH í Kaplakrika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason var gríðarlega ánægður með baráttu Víkings og frammistöðu Telmu í 1-0 sigri á FH í Kaplakrika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur vann gríðarlega sterkan 0-1 sigur á FH í Kaplakrika í kvöld. Einar Guðnason, þjálfari Víkings, var eðlilega ánægður eftir leikinn enda hélt liðið hreinu gegn einu öflugasta sóknarliði deildarinnar.
„Ég er bara ótrúlega glaður. Frábær sigur. Frábært að koma hérna á sennilega erfiðasta útivöllinn á landinu og vinna og halda hreinu á móti þessu ótrúlega öfluga sóknarliði,“ sagði Einar eftir leik.
FH hefur raðað inn mörkum í sumar og vann Víking stórt í fyrri leik liðanna. Einar segir því sigurinn vera mikla framför.
„Ég veit ekki hvað þær eru búnar að skora mörg mörk í sumar en þær eru að leika sér að skora sex mörk í leik og skoruðu fimm mörk á okkur síðast. Þannig að þetta er mikil framför.“
Aðspurður hvað hefði skilið liðin að sagði Einar að sigurinn hefði byggst á agaðri varnarvinnu og hjarta leikmanna Víkings.
„Það var náttúrulega rosalega agaður varnarleikur hjá okkur og þegar þær náðu skotum á markið þá varði Telma.“
„Það var vinnusemin og hjartað í liðinu sem skapaði sigurinn.“
Stóra augnablikið kom þegar FH fékk vítaspyrnu en Telma varði. Einar segist hafa verið rólegur þegar boltinn var settur á punktinn.
„Ég vissi að hún myndi verja það. Ég var einhvern veginn ótrúlega rólegur með það því þetta er ekkert smá stykki þarna í markinu og það er erfitt að taka víti á móti henni.“
Hann fór fögrum orðum um markvörðinn, sem kom til Víkings í glugganum.
„Ég held að sóknarmenn í liðunum sem við mætum núna á næstunni eigi bara að vera hræddir við hana.“
Sigurinn er mikilvægur fyrir Víking í botnbaráttunni en Einar vill ekki horfa lengra en á næsta verkefni.
„Við byrjum bara á næsta leik. Við ætlum bara að vinna. Svo einfalt er það.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
