Fotbolti.net
21.08.26 - 20:18
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Valur úr fallsæti - FH tapaði

Besta deild kvenna: Valur úr fallsæti - FH tapaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Tveimur leikjum var að ljúka í Bestu deild kvenna þar sem Valur og Víkingur R. sóttu mjög sterka sigra í heimsóknum sínum til Akureyrar og Hafnarfjarðar.
Valur heimsótti Þór/KA í mikilvægum fallbaráttuslag og var staðan markalaus í leikhlé. Heimakonur voru sterkari aðilinn en Valur fékk besta færið undir lok fyrri hálfleiks.

Það var lítið sem ekkert að frétta í afar bragðdaufum seinni hálfleik, allt þar til á lokamínútunum þegar Margrét Brynja Kristinsdóttir fékk boltann fyrir utan teig og lyfti honum á kollinn á Lillý Rut Hlynsdóttur sem skallaði í netið. Þór/KA reyndi að jafna í uppbótartíma en skapaði ekki mikla hættu, svo lokatölur urðu 0-1.

Valur er með 16 stig eftir 16 umferðir og lyftir sér upp úr fallsæti með þessum sigri, en þó aðeins á markatölu. Þór/KA er tveimur stigum fyrir ofan.

Í Hafnarfirði tók FH á móti botnliði Víkings R. og þurftu heimakonur sigur í toppbaráttunni, en Bergdís Sveinsdóttir náði forystunni fyrir gestina þrátt fyrir góða byrjun FH.

FH fékk mikið af hálffærum til að jafna metin en tókst ekki að koma boltanum í netið. Víkingur varðist vel og komst í færi en staðan var 0-1 í leikhlé.

FH skipti um gír í síðari hálfleik og skapaði mikið af góðum færum en boltinn rataði ekki í netið. Telma Ívarsdóttir stóð sig vel á milli stanganna og var varnarlínan öflug en vítaspyrna var dæmd á lokakaflanum. Ásdís Karen Halldórsdóttir steig á punktinn en Telma varði vel til að tryggja nauman sigur.

Þetta er annar tapleikurinn í röð hjá FH á heimavelli og er liðið þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks. Þetta var kjörið tækifæri fyrir Hafnfirðinga að jafna Blika á stigum eftir óvænt tap Kópavogskvenna, en þær hafnfirsku nýttu það ekki.

Víkingur situr áfram á botninum en er aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni eftir þennan sigur.

Það eru tvær umferðir eftir af deildartímabilinu.

Þór/KA 0 - 1 Valur
0-1 Lillý Rut Hlynsdóttir ('90 )

Lestu um leikinn



FH 0 - 1 Víkingur R.
0-1 Bergdís Sveinsdóttir ('22 )
0-1 Ásdís Karen Halldórsdóttir ('88 , misnotað víti)

Lestu um leikinn
Besta deild kvenna: Valur úr fallsæti - FH tapaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Valur úr fallsæti - FH tapaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Valur úr fallsæti - FH tapaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.