„Mistök Jóns voru að taka við þessu og ég var búinn að segja það við hann“

Máni segir það hafa verið mistök hjá Jóni Þór að taka við Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Máni ræðir stöðu mála í Garðabæ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég held að mistökin hafi verið að láta Jökul fara.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ekki hrifinn af þessu ferðalagi og hef ekki verið í talsverðan tíma.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Máni segir það hafa verið mistök hjá Jóni Þór að taka við Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tilkynnt var um uppsögn Jóns í gærmorgun en hann hafði stýrt liðinu í rúma tvo mánuði. Hann var ráðinn sem þjálfari liðsins eftir að Jökull Elísabetarson var látinn taka pokann sinn í júní.
Jón var við stjórnvölinn í þrettán leikjum Stjörnunnar í bæði deild og Evrópu. Fimm þeirra unnust, fimm töpuðust og voru jafnteflin þrjú.

Jón Þór rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)
„Ég held að mistökin hafi verið að láta Jökul fara. Það er ekki hægt að láta þjálfara fara sem er ekki búinn að missa klefann á miðju tímabili. Hann hefði allavega átt að klára tímabilið og menn þá geta farið í stefnubreytingu,“ segir Máni en hann segist ekki vera hrifinn af því ferðalagi sem félagið er á.
„Það hefur svo margt farið úrskeiðis að það er of langt að telja upp. Ég veit samt alveg að stjórn og starfsmenn félagsins eru að reyna að gera sitt besta með hag félagsins að leiðarljósi. Ég er samt ekki hrifinn af þessu ferðalagi og hef ekki verið í talsverðan tíma,“ segir Máni.
Ferðalög sem eru dæmd til að mistakast
Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson munu stýra Stjörnunni út tímabilið og þá mun Hákon Ernir Haraldsson verði jafnframt áfram í þjálfarateyminu. Máni segir félagið þurfa að kjarna sig og að klára tímabilið með reisn.
„Það þarf að loka þessu tímabili og félagið þarf að kjarna sig. Félagið hefur alltaf haft sín markmið. En ferðalög sem hafa markmið en engin gildi eða tilgang eru dæmd til að mistakast. Það er að gerast núna. Það þarf að kalla fleiri að borðinu, finna gildin og tilganginn og síðan koma markmiðin. Við lærum vonandi af þessu,“ segir Máni.
Lykilatriði að fá yfirmann fótboltamála
Aðspurður um hvort Stjarnan gæti fallið svaraði Máni einfaldlega. „Já, Stjarnan getur fallið.“
Hvern viltu sjá taka við þessu?
„Það þarf að byrja að ráða yfirmann knattspyrnumála. Það þarf að gera áður en við ráðum þjálfara. Það er bara algert lykilatriði,“ segir máni að lokum.
Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Þór á Samsungvellinum á sunnudag. Liðið er í 8. sæti deildarinnar.

Máni ræðir stöðu mála í Garðabæ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég held að mistökin hafi verið að láta Jökul fara.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ekki hrifinn af þessu ferðalagi og hef ekki verið í talsverðan tíma.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ómyrkur í máli um stöðu mála í Garðabæ - „Myndi ekki endursemja við einn einasta leikmann“

Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 19 | -5 | 23 |
| 8 | Stjarnan | 19 | -12 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 19 | -12 | 16 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |
