21.08.26 - 19:03
Ívan Guðjón Baldursson
Velur Benfica framyfir ensku úrvalsdeildina

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Joao Palhinha virðist vera á leið aftur heim til Lissabon þar sem fjölskylda hans býr.

TENGT EFNI
Fjölskyldan kemur í veg fyrir félagaskipti til Newcastle
Sky í Þýskalandi greinir frá því að Benfica komst að samkomulagi við FC Bayern München um kaupverð fyrir Palhinha, sem var einnig eftirsóttur af Aston Villa og Newcastle United.
Benfica greiðir allt að 20 milljónir evra, með árangurstengdum aukagreiðslum, fyrir miðjumanninn. Talið er að Palhinha hafi upprunalega viljað skipta aftur í ensku úrvalsdeildina en fjölskyldan sannfærði hann um að flytja heim.
Palhinha er uppalinn hjá Sporting CP, nágrannaliðinu í Lissabon, en er sérstaklega spenntur fyrir að starfa undir stjórn Marco Silva hjá Benfica. Þeir þekkjast vel eftir tveggja ára dvöl saman hjá Fulham.
Palhinha er 31 árs gamall og lék á láni hjá Tottenham á síðustu leiktíð.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.