Fotbolti.net
21.08.26 - 16:00
Brynjar Ingi Erluson

Lærisveinn Heimis til Real Betis (Staðfest)

Lærisveinn Heimis til Real Betis (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Írski landsliðsmaðurinn Troy Parrott er mættur til Real Betis frá AZ Alkmaar fyrir 17,1 milljón punda.
Þessi 24 ára gamli framherji skrifaði undir fimm ára samning við spænska félagið í gær.

Betis greiðir AZ Alkmaar 13,7 milljónir punda og gæti kaupverðið hækkað um 3,4 milljónir til viðbótar með árangurstengdum greiðslum.

Tottenham, uppeldisfélag Parrott, fær um þrjár milljónir punda af kaupverðinu vegna endursöluákvæðis sem var sett í samninginn þegar hann fór til AZ árið 2024.

West Ham reyndi að fá Parrott í síðustu viku en AZ hafnaði tilboði upp á sautján milljónir punda og fór fram á að minnsta kosti 21,5 milljónir. Hollenska félagið lækkaði hins vegar kröfurnar á dögunum enda vildi Parrott ólmur ganga til liðs við Betis og spila í Meistaradeildinni.

Parrott er lærisveinn Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu og hefur reynst liðinu gríðarlega mikilvægur. Hann kom Írum í umspil um sæti á HM undir lok síðasta árs með því að skora þrennu í dramatískum 3-2 sigri á Ungverjalandi, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa skorað tvennu gegn Portúgal.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.