21.08.26 - 15:54
Kári Snorrason
Chelsea hafnar tilboði Leeds í Mudryk

Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk var aflétt í síðasta mánuði.

Mynd: EPA

Chelsea hefur hafnað lánstilboði Leeds í úkraínska vængmanninn Mykhailo Mudryk.
Tilboð Leeds kvað á um lánssamning út tímabilið en tilboðið var of lágt að mati Chelsea. Samningaviðræður liðanna halda þó áfram og greinir BBC frá því að Mudryk hafi áhuga að fara á Elland Road.

TENGT EFNI
Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk aflétt
Ljóst er að Mudryk muni fara frá Chelsea á láni þar sem hann þarf að endurheimta leikform hafandi verið í keppnisbanni í tæp tvö ár vegna ólöglegrar lyfjanotkunar.
Banninu var aflétt í júlí og hóf hann samstundis æfingar með Chelsea en félagið var þá í æfingaferð í Hong Kong. Í banninu mátti Mudryk ekki taka þátt í skipulögðum æfingum félagsins.
Leeds er ekki eina liðið sem hefur áhuga á þessum 25 ára Úkraínumanni en nýliðar Coventry hafa einnig sýnt honum áhuga.