Newcastle og Brighton eigast við í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Byrjunarlið beggja liða hafa verið staðfest og má sjá hér fyrir neðan.
Steve Bruce gerir eina breytingu á liðinu sem tapaði fyrir Liverpool í síðustu umferð. Javier Manquillo kemur inn í hægri bakvörðinn fyrir Emil Krafth.
Graham Potter gerir hins vegar þrjár breytingar á liðinu sem gerði jafntefli við Burnley um síðustu helgi. Aaron Mooy, Steven Alzate og Martin Montoya koma inn í byrjunarliðið.
Brighton mun því spila með fjögurra manna varnarlínu en ekki fimm manna eins og í síðasta leik. Brighton er með fimm stig eftir fimm umferðir. Newcastle er með fjögur stig.
Newcastle: Dubravka, Manquillo, Schar, Lascelles, Dummett, Willems, Hayden, Shelvey, Atsu, Almiron, Joelinton
Varamenn:
Brighton: Ryan, Montoya, Dunk, Webster, Burn, Propper, Stephens, Mooy, Gross, Maupay, Alzate
Varamenn:
Athugasemdir