Alfreð Finnbogason lék allan tímann er Augsburg gerði 1-1 jafntefli við Freiburg. Alfreð komst ekki á blað og fékk gult spjald í leiknum.
Augsburg er með fimm stig eftir fimm umferðir á meðan Freiburg er meðal toppliðanna, með tíu stig.
Robert Lewandowski skoraði þá tvennu í auðveldum sigri Bayern München. Lánsmennirnir Philippe Coutinho og Ivan Perisic komust einnig á blað gegn nýliðunum frá Köln sem voru manni færri síðasta hálftímann.
Bayer Leverkusen og Hertha Berlin unnu þá heimaleiki sína gegn hinum nýliðunum.
FC Bayern 4 - 0 Köln
1-0 Robert Lewandowski ('3 )
2-0 Robert Lewandowski ('48 )
3-0 Philippe Coutinho ('62 , víti)
4-0 Ivan Perisic ('73 )
Rautt spjald:Kingsley Ehizibue, Köln ('59)
Bayer Leverkusen 2 - 0 Union Berlin
1-0 Kevin Volland ('20 )
2-0 Lucas Alario ('25 )
Rautt spjald:Sebastian Polter, Union Berlin ('66)
Hertha Berlin 2 - 1 Paderborn
1-0 Javairo Dilrosun ('10 )
2-0 Marius Wolf ('52 )
2-1 Ben Zolinski ('54 )
Freiburg 1 - 1 Augsburg
1-0 Lucas Holer ('23 )
1-1 Florian Niederlechner ('39 )
Athugasemdir