Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 21. september 2022 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Juventus missti af gullnu tækifæri"
Mynd: EPA

Juventus hefur byrjað tímabilið afar illa en liðið er aðeins með 10 stig í 8. sæti Serie A eftir sjö umferðir. Þá er liðið án stiga eftir tvær umferðir í Meistaradeildinni.


Massimo Allegri stjóri Juventus er undir mikilli pressu.

Carlo Nicolini aðstoðar framkvæmdarstjóri Shakhtar Donetsk greinir frá því að hann hafi stungið uppá því að Juventus skyldi ráða Roberto De Zerbi en hann er nú tekinn við Brighton.

„Það kom ekkert tilboð [frá ítalíu]. Ég benti Juventus á De Zerbi en svo kom Brighton með spennandi tilboð. Juventus missti af gullnu tækifæri, þetta hefði verið rétti tíminn að ráða hann," sagði Nicolini.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner