21.09.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De la Fuente stýrir spænska landsliðinu á EM 2032

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska fótboltasambandið hefur náð samkomulagi við Luis de la Fuente, landsliðsþjálfara, um nýjan sex ára samning eftir að liðið vann HM í sumar.
Hann mun því stýra liðinu á HM 2030 sem verður haldið á Spáni, Marokkó og Portúgal. Þá verður hann stjóri liðsins á EM 2028 og 2032.

„Ég get fullvissað ykkur um að við erum ekki fullkomlega ánægð með það sem við höfum áorkað hingað til. Ég segi það sjálfur, en þetta er tilfinning sem allir í þessum hópi deila: það besta er enn eftir, trúið mér,“ sagði de la Fuente.
„Spænska sambandið er mín önnur fjölskylda og ég vil alltaf vera náinn fólkinu sem ég elska. Þess vegna vil ég vera áfram með sambandinu. Ég elska að vera hérna. Ég vil ekki vita neitt um aðra staði, ég vil ekki heyra neitt um eitthvað annað. Ég vil halda áfram hjá spænska sambandinu í mörg ár. Það gerir mig hamingjusamann því mér líður eins og heima hjá mér."
De la Fuente tók við landsliðinu af Luis Enrique eftir að liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum gegn Marokkó á HM 2022 í Katar. Spænska landsliðið vann annan heimsmeistaratitil sinn í júlí undir hans stjórn eftir sigur á Argentínu í úrslitum.
Hann hefur unnið 38 af 50 leikjum undir stjórn spænska landsliðsins.