Fotbolti.net
21.09.26 - 08:25
Elvar Geir Magnússon

Palmer dregur sig úr enska hópnum

Palmer tekur kuldafagnið.

Palmer tekur kuldafagnið.

Canon

Mynd: EPA

Cole Palmer hjá Chelsea hefur dregið sig út úr enska landsliðshópnum fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni vegna minniháttar meiðsla.

Þessi 24 ára gamli sóknarleikmaður var ekki valinn í hóp Thomas Tuchel fyrir HM og vakti það mikið umtal.
Trent, Palmer og Rio í enska landsliðshópnum
TENGT EFNI

Trent, Palmer og Rio í enska landsliðshópnum

Enska landsliðið mætir heimsmeisturum Spánar á Wembley laugardaginn 26. september, ferðast síðan til Tékklands (29. september) og Króatíu (3. október) áður en liðið tekur á móti Tékkum þann 6. október.

Palmer dregur sig úr hópnum eftir að hafa spilað allan leikinn fyrir Chelsea í 3-0 tapi gegn Brentford á föstudaginn.

Hann hefur byrjað sex af sjö leikjum Chelsea á tímabilinu og spilað allar 90 mínúturnar í fimm þeirra – skorað fjögur mörk og lagt upp tvö. Síðasti landsleikur Palmer fyrir England var vináttuleikur gegn Japan í mars, þar sem liðið tapaði 1-0.
Thomas Tuchel.

Thomas Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.