Nýtt leikjafyrirkomulag fyrir síðustu leiki Íslandsmótsins var tilkynnt áðan.
Kvennalið KR hefur verið mjög óheppið á tímabilinu og þurft að fara í sóttkví þrisvar sinnum.
Liðið á eftir að spila fjóra leiki í Pepsi Max-deildinni og mun liðið spila þessa fjóra leiki á tíu dögum samkvæmt leikjafyrirkomulaginu nýja.
Ljóst er að það verður mjög erfitt fyrir KR-inga sem eru á botni Pepsi Max-deildarinnar með tíu stig, sjö stigum frá öruggu sæti. Liðið á tvo leiki inni á ÍBV, sem er í áttunda sæti.
Síðasti leikur tímabilsins í Pepsi Max-deild kvenna verður leikur KR og Fylkis þann 18. nóvember, en síðasta umferð deildarinnar fer fram 15. nóvember samkvæmt nýju plani.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir