Salzburg frá Austurríki gerði 2-2 jafntefli við Lokomotiv Moskvu í fyrsta leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Dominik Szoboszlai jafnaði metin fyrir Salzburg undir lok fyrri hálfleiks eftir að Lokomotiv hafði tekið forystuna. Mark Szoboszlai var glæsilegt.
Markið má sjá með því að smella hérna.
Szoboszlai er 19 ára gamall og er hann vonarstjarna Ungverjalands sem við Íslendingar mætum í úrslitaleik um sæti á EM, sem fram fer næsta sumar, í næsta mánuði.
Szoboszlai hefur spilað 10 A-landsleiki og skorað tvö mörk. Hann er leikmaður sem íslenska liðið þarf að hafa góðar gætur á.
Athugasemdir