fim 21. október 2021 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stuðningsmenn gefa Puel 24 tíma til að segja af sér
Mynd: EPA
Stuðningsmenn AS Saint-Etienne í Frakklandi hafa fengið nóg af stjórnarháttum Claude Puel eftir tvö ár hjá félaginu.

Saint-Etienne situr óvænt á botni frönsku deildarinnar eftir tíu umferðir, með fjögur stig eftir fjögur jafntefli.

Stuðningsmenn Saint-Etienne kenna Puel um slæmt gengi félagsins og þeim líkar ekki framkoma hans, þeir telja hann vera hrokafullann og vilja sjá hann burt.

Þeir hafa því gefið stjóranum 24 klukkustundir til að segja af sér ef marka má borða sem stuðningsmenn mættu með á æfingasvæði Saint-Etienne í dag.

Puel, sem var leikmaður AS Mónakó í 17 ár, hefur áður stýrt Mónakó, Lille, Lyon og Nice í Frakklandi auk Southampton og Leicester á Englandi.

<1blockquote class="twitter-tweet">

Saint-Étienne supporters with a message to Claude Puel in front of the training ground today: “We’ll give your 24 hours to resign...” (📷@Site_Evect) pic.twitter.com/D8Nrif7ONq

— Get French Football News (@GFFN) October 21, 2021
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner