21.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Óttar Guðlaugs tekur við Árborg (Staðfest)

Óttar er nýr þjálfari Árborgar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óttar er nýr þjálfari Árborgar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óttar Guðlaugsson er nýr þjálfari Árborgar en þetta tilkynnti félagið á Instagram í gær.
Óttar þekkir vel til hjá félaginu og hefur bæði fjölbreytta þjálfaramenntun og mikla reynslu af þjálfun.
Hann hefur komið að þjálfun hjá Selfossi, Grindavík og Hetti auk þess að hafa starfað með yngri landsliðum Íslands.
Honum til aðstoðar verða Ingimar Helgi Finnsson og Steinar Aron Magnússon, en báðir þekkja vel til hjá Árborg.
Steinar hefur mikla reynslu sem bæði leikmaður og þjálfari og hefur leikið með félaginu um árabil. Sama má segja um Ingimar, eða „Litlu flugvélina“ eins og hann er oft kallaður, en hann hefur bæði spilað og þjálfað hjá Árborg.
Ingimar mun meðal annars leggja áherslu á tæknilega þróun leikmanna auk þess að aðstoða við æfingar og leiki.
„Knattspyrnufélagið Árborg hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á að gefa til baka til samfélagsins. Við trúum því að félagið okkar eigi ekki aðeins að ala upp góða knattspyrnumenn heldur einnig góða einstaklinga. Samfélagsleg ábyrgð, virðing, gleði og metnaður eru þau gildi sem við viljum að einkenni allt okkar starf, jafnt innan vallar sem utan. Við í stjórn Knattspyrnufélags Árborgar hlökkum til að vinna með þeim Óttari, Steinari og Ingimari að því að gera gott starf enn betra,“ segir í tilkynningunni.
Árborg hafnaði í 3. sæti 4. deildar á síðasta tímabili með 36 stig.