Fotbolti.net
21.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Vill sjá Maresca nota Foden meira í 'níunni'

Vill sjá Maresca nota Foden meira í 'níunni'
Canon

Mynd: EPA

Phil Foden fór á kostum í 5-1 sigri Manchester City á AEK í Meistaradeildinni í gær, en fyrrum leikmaður félagsins telur að Enzo Maresca, stjóri City, ætti að nýta hann oftar í sama hlutverki og hann spilaði í gær.
Fyrsta þrenna Foden í Meistaradeildinni - „Enn langt í land en er á réttri leið“
TENGT EFNI

Fyrsta þrenna Foden í Meistaradeildinni - „Enn langt í land en er á réttri leið“

Maresca ákvað að nota Foden sem falska níu í fjarveru Erling Braut Haaland, sem fékk hvíld á varamannabekknum.

Englendingurinn fór á kostum, skoraði þrennu og lagði upp eitt mark til viðbótar. Hann er svo sannarlega farinn að minna á gamla Foden.

Joleon Lescott, sem lék um tíma með Manchester City, telur að Foden hafi sýnt að hann sé rétti maðurinn til að leysa Haaland af í fremstu víglínu þegar á þarf að halda.

„Fegurð er orðið sem ég myndi nota til að lýsa Phil Foden. Hann er alveg einstakur þegar kemur að því að klára færin.“

„Ég held að honum hafi tekist að sannfæra stjórann um að ef Erling Haaland getur ekki spilað af einhverjum ástæðum á tímabilinu, þá sé Foden rétti maðurinn til að taka við hlutverki hans í fremstu víglínu,“
sagði Lescott á TNT Sports.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.