Fotbolti.net
20.10.26 - 19:32
Brynjar Ingi Erluson

Tapaði aldrei voninni - „Gat ekki andað í tvö ár“

Kulusevski er mættur aftur

Kulusevski er mættur aftur

Canon

Mynd: EPA

Sænski vængmaðurinn Dejan Kulusevski sneri aftur á völlinn í gær eftir eins og hálfs árs fjarveru þegar hann kom inn af bekknum í 3-1 sigri Tottenham á Coventry.
England: Maddison með stórkostlegt mark í fyrsta sigri Tottenham
TENGT EFNI

England: Maddison með stórkostlegt mark í fyrsta sigri Tottenham

Kulusevski hafði ekki spilað síðan í maí á síðasta ári vegna erfiðra og flókinna meiðsla sem héldu honum frá keppni allan þennan tíma.

Hann hefur lagt gríðarlega hart að sér við að komast aftur á völlinn og loksins kom að því þegar hann spilaði síðustu mínúturnar í fyrsta sigri Tottenham á tímabilinu.

„Á köflum virtist nánast ómögulegt að ég myndi snúa aftur. Þetta var mjög flókið ferli, en innst inni hafði ég alltaf trú á því að ég myndi spila fótbolta aftur. Ég varð að halda í þá trú og það gerði ég. Ég missti aldrei alveg vonina, þótt stundum væri nánast ómögulegt að halda henni á lífi.“

„Fyrir nokkrum mánuðum sagði ég við fólkið sem stendur mér næst að kannski myndi þetta ekki ganga upp, en í hjarta mínu vissi ég alltaf að mér myndi takast þetta. Ég vann í tíu tíma á dag þegar enginn sá til mín og jafnvel þegar allt virtist vonlaust og aðrir voru farnir að missa trúna gafst ég ekki upp.“

„Guð gaf mér styrk til að halda áfram og ég get ekki eignað mér allan heiðurinn af því sem ég gerði, því ég var ekki einn í þessu. Guð var með mér á hverjum einasta degi.“

„Ég naut þess að vera kominn aftur á völlinn, en ég sé sjálfan mig öðrum augum í dag. Ég er enn sami strákurinn sem vill bara spila fótbolta, en ég er orðinn aðeins vitrari.“

„Ímyndaðu þér að vera í þeirri stöðu að allir í kringum þig séu að gefast upp, en þú getur það ekki því fótbolti er eins og andardráttur fyrir mér. Ég gat ekki andað í tvö ár, en ég átti enn fjölskylduna mína og liðsfélagana. Ég mætti alltaf með bros á vör og reyndi að hvetja þá áfram. Það þarf mikla ást, hugrekki og sannfæringu til að gera það,“
sagði Kulusevski.

Svíinn er jafnframt spenntur fyrir því að vinna áfram með Roberto De Zerbi, stjóra Tottenham.

„Hann er ótrúlegur þjálfari. Ég er mjög hrifinn af honum og get ekki beðið eftir að halda áfram að vinna með honum,“ sagði Kulusevski í lokin.
Tapaði aldrei voninni - „Gat ekki andað í tvö ár“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.