21.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
PSG með fjórtán mörk í þremur leikjum - „Þvílík stemning!“

Luis Enrique

Mynd: EPA

Luis Enrique

Mynd: EPA
Luis Enrique, þjálfari Evrópumeistara Paris Saint-Germain, sagði áhorfendur hafa orðið vitni að frábærum fótboltaleik þegar það vann Barcelona, 4-2, í Meistaradeildinni í gær.

TENGT EFNI
Einkunnir úr Meistaradeildinni: Foden og Ngumoha í sérflokki - Van Dijk ólíkur sjálfum sér
Leikurinn var frábær auglýsing fyrir Meistaradeildina þar sem bæði lið lögðu mikla áherslu á sóknarleikinn.
PSG hafði þó betur að lokum með mörkum frá Vitinha og Fabian Ruiz.
„Þvílík stemning! Það sem stuðningsmennirnir gerðu í stúkunni var enn og aftur ótrúlegt. Við sáum tvö lið spila frábæran og sókndjarfan fótbolta, en við sýndum okkar gæði. Þetta var mjög jafn leikur. Við vorum nánast óaðfinnanlegir í fyrri hálfleik en lentum í smá vandræðum fyrstu fimmtán mínúturnar í þeim síðari.“
„Það var erfitt að ná aftur stjórn á leiknum en þegar okkur tókst það fórum við að skapa fleiri færi og náðum að vinna. Þetta eru auðvitað bara þrjú stig í viðbót en það er alltaf ánægjulegt að vinna jafn gott lið og Barcelona.“
„Maður þarf alltaf að komast í gegnum erfiða kafla í svona leikjum, sérstaklega gegn jafn sterkum mótherja. Það gerðist líka á síðasta ári gegn Arsenal og Bayern. Stundum hefur andstæðingurinn einfaldlega svör við því sem þú ert að gera og þá neyðist maður til að falla aftar á völlinn og verjast.“
„Það er ekki þannig sem við viljum spila en við komumst í gegnum þennan kafla í kvöld. Leikmennirnir sem komu inn af bekknum voru frábærir og gáfu okkur mikla orku. Við erum ánægðir með sigurinn en nú þurfum við að halda áfram á sömu braut,“ sagði Enrique.
PSG og Liverpool eru einu liðin sem eru með fullt hús í deildarkeppninni til þessa en fimm lið gætu bæst við þann hóp í kvöld.