Fotbolti.net
20.10.26 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Konate: Real Madrid er besta félag heims

Konate: Real Madrid er besta félag heims
Canon

Mynd: EPA

Ibrahima Konate, varnarmaður Real Madrid, segir spænska stórliðið vera besta félag í heimi og að ekkert annað félag komist nálægt því.
Konate er á sínu fyrsta tímabili hjá Madrídingum eftir að hafa komið á frjálsri sölu frá Liverpool í sumar.

Tímabilið hefur þó ekki farið eins vel af stað og vonir stóðu til og er Real Madrid þegar komið á eftir Barcelona í baráttunni um spænska meistaratitilinn.

„Real Madrid er besta félag í heimi. Þetta er miklu stærra en ég átti von á. Hér er allt í svo miklu stærri skala og fólk um allan heim er að tala um okkur.“

„Ég er ótrúlega ánægður hérna og allir hjá félaginu hafa hjálpað mér að koma mér fyrir og látið mér líða vel. Það mikilvægasta fyrir mig er að vinna titla og vonandi tekst okkur það á þessu tímabili,“
sagði Konate.

Frakkinn verður væntanlega í eldlínunni þegar Real Madrid mætir RB Leipzig, fyrrum félagi hans, í Meistaradeildinni á morgun, en Madrídingar hafa unnið báða leiki sína í keppninni til þessa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.