Fotbolti.net
20.10.26 - 18:53
Brynjar Ingi Erluson

Þrettán marka sigur hjá Daníelu - Sunneva á skotskónum

Daníela Dögg er komin áfram í 16-liða úrslita norska bikarsins

Daníela Dögg er komin áfram í 16-liða úrslita norska bikarsins

Canon

Mynd: Heimasíða Álasunds

Kvennaboltinn
Norska kvennaliðið Álasund heldur áfram að gera frábæra hluti á tímabilinu, en liðið tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar með því að slátra Hödd, 13-0, í kvöld.
Daníela Dögg Guðnadóttir var í byrjunarliði Álasunds sem er í harðri baráttu um norska meistaratitilinn, þrátt fyrir að vera nýliði í úrvalsdeildinni.

Liðið lætur sér þó ekki nægja að berjast um deildartitilinn og er nú komið áfram í næstu umferð bikarkeppninnar eftir að hafa gjörsamlega valtað yfir Hödd.

Álasund var komið í 7-0 í hálfleik og bætti við sex mörkum í þeim síðari. Lokatölur urðu því 13-0 í ótrúlegum stórsigri.

Í Danmörku skildu Köge og Bröndby jöfn, 1-1, í viðureign Emelíu Óskarsdóttur og Hafrúnar Rakelar Halldórsdóttur.

Báðar hófu leikinn á bekknum en Emelía kom inn á í hálfleik hjá Köge, á meðan Hafrún var kölluð til leiks hjá Bröndby þegar stundarfjórðungur var eftir.

Köge situr á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar með 26 stig en Bröndby er í þriðja sæti með 21 stig.

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir var síðan á skotskónum hjá FCK sem vann 3-0 sigur á Österbro í 16-liða úrslitum danska bikarsins.

Sunneva kom FCK yfir á 67. mínútu áður en Sille Fuhlendorff og Frederikke Cajus Boisen bættu við mörkum og tryggðu liðinu öruggan sigur.
Sunneva Hrönn skoraði fyrir FCK

Sunneva Hrönn skoraði fyrir FCK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.