Fotbolti.net
22.01.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Phoenetia Browne frá FH til Þýskalands (Staðfest)

Phoenetia Browne er frábær leikmaður sem fær nú að spreyta sig í Þýskalandi

Phoenetia Browne er frábær leikmaður sem fær nú að spreyta sig í Þýskalandi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kvennaboltinn
Phoenetia Browne er gengin í raðir SC Sand í þýsku úrvalsdeildinni en hún kemur til félagsins frá FH.
Browne, sem er 26 ára gömul, skoraði sex mörk í átta leikjum með FH í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar.

Þessi magnaði árangur hennar skilaði henni samning hjá SC Sand sem spilar í efstu deild í Þýskalandi en liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar með 6 stig.

Browne hefur áður spilað á Íslandi en hún lék með Sindra í 1. deildinni árið 2017 og skoraði þá tíu mörk í sextán leikjum í deildinni og gerði þá tvö mörk í bikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.