Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 21:12
Ívan Guðjón Baldursson
Arnór og Nökkvi í byrjunarliðum - Tómas Óli kom inn í stórsigri
Mynd: Malmö
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Telstar
Það komu ýmsir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víðsvegar um Evrópu og víðar.

Arnór Sigurðsson var í byrjunarliðinu í 1-0 sigri Malmö gegn Varberg í fyrstu umferð sænska bikarsins. Malmö er einnig með Halmstad í riðli og stigin þrjú eru því kærkomin.

Arnór lék fyrstu klukkustundina á meðan Daníel Tristan Guðjohnsen byrjaði á bekknum og fékk að spreyta sig á lokamínútunum.

Í Tyrklandi lék Logi Tómasson allan leikinn í vinstri bakvarðarstöðunni hjá Samsunspor sem gerði markalaust jafntefli við Karagümrük. Samsunspor siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar með 31 stig eftir 23 umferðir.

Í gríska boltanum lék Hörður Björgvin Magnússon allan leikinn í stóru tapi Levadiakos gegn ógnarsterku toppliði AEK frá Aþenu. Það var aðeins eitt lið á vellinum í 4-0 sigri en Levadiakos er í fjórða sæti eftir tapið, með 39 stig úr 22 leikjum.

Davíð Kristján Ólafsson lék einnig allan leikinn í efstu deild í Grikklandi er fallbaráttulið AEL Larissa náði jafntefli við toppbaráttulið PAOK. Larissa er í þriðja neðsta sæti með 21 stig eftir 22 umferðir.

Í efstu deild í Hollandi fékk Nökkvi Þeyr Þórisson að spila fyrstu 67 mínúturnar í 2-1 tapi hjá Telstar á útivelli gegn Feyenoord. Anis Hadj Moussa skoraði bæði mörk leiksins eftir stoðsendingar frá Jordan Bos. Telstar sýndi flottar rispur en Feyenoord var sterkari aðilinn og verðskuldaði sigurinn.

Nökkvi og félagar sitja í fallsæti, sex stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar tíu umferðir eru eftir, en Nökkvi leikur hjá félaginu á lánssamningi frá Sparta Rotterdam.

Aron Einar Gunnarsson lék í rúma klukkustund í naumu tapi Al-Gharafa í efstu deild í Katar. Þetta var þriðji tapleikur liðsins í röð og er Al-Gharafa með 31 stig eftir 16 umferðir, fjórum stigum á eftir toppliði Al-Sadd sem hefur unnið síðustu níu deildarleiki í röð.

Ísak Andri Sigurgeirsson var í byrjunarliði Viborg sem steinlá gegn AGF, toppliði dönsku deildarinnar, er liðin mættust í dag. Ísaki var skipt af velli eftir klukkutíma af leiknum og var staðan þá orðin 3-1, en lokatölur urðu 5-2.

Hinn 17 ára gamli Tómas Óli Kristjánsson fékk að spreyta sig á lokamínútum leiksins í liði Aarhus, sem er með tveggja stiga forystu á ríkjandi meisturum Midtjylland í æsispennandi titilbaráttu. Viborg er um miðja deild með 30 stig eftir 21 umferð.

Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Aalesund sem tapaði æfingaleik gegn Fredrikstad og byrjaði Davíð Snær Jóhannsson á bekknum.

Að lokum var Daníel Freyr Kristjánsson ekki í hóp hjá Fredericia sem lagði Randers að velli til að klifra upp úr botnsætum dönsku deildarinnar, ekki frekar en Lúkas Petersson er varalið Hoffenheim fékk þrjú mörk á sig á heimavelli og tapaði í þriðju efstu deild í Þýskalandi. Gísli Gottskálk Þórðarson var ónotaður varamaður í sigri Lech Poznan í Póllandi.

Malmö 1 - 0 Varberg

Karagumruk 0 - 0 Samsunspor

AEK 4 - 0 Levadiakos

Larissa 1 - 1 PAOK

Feyenoord 2 - 1 Telstar

Al-Gharafa 0 - 1 Shamal

AGF 5 - 2 Viborg

Aalesund 2 - 3 Fredrikstad

Randers 1 - 2 Fredericia

Hoffenheim II 1 - 3 Viktoria Köln

Korona Kielce 1 - 2 Lech Poznan

Athugasemdir
banner
banner
banner