Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 11:37
Brynjar Ingi Erluson
Arteta: Sættu þig við hávaðann eða farðu í eitthvað annað lið
Mikel Arteta
Mikel Arteta
Mynd: EPA
Titilbaráttan er galopin í ensku úrvalsdeildinni og fara Mikel Arteta og lærisveinar hans í Arsenal í stórt próf í dag er liðið heimsækir erkifjendur sína í Tottenham.

Arsenal þarf að ná í sigur til þess að setja titilinn ekki í hendur Man City.

Lundúnaliðið hefur átt frábært tímabil til þessa. Það endaði efst í Meistaradeildinni og er með tveggja stiga forystu í úrvalsdeildinni ofan á það að vera komnir í úrslit deildabikarsins.

Hann segir að leikmenn verði að vera með rétta hugarfarið, annars geti þeir leitað annað.

„Ég spyr þá að spurninguninni: 'Viltu vera hluti af þessum hávaða eða ekki?'. Ef ekki þá farðu þá og gerðu eitthvað annað eða farðu í annað lið.“

„Það hafa allir krafist og kallað eftir því í tíu eða fimmtán ár að koma okkur aftur á toppinn og núna erum við þar. Og hvað nú? Viltu ekki hávaðann?“

„Hávaðinn er hluti af þessu og við reynum að eiga við þetta með réttum hætti og reyna finna það sem við erum að leita að,“
sagði hann í lokin.

Leikur Tottenham og Arsenal hefst klukkan 16:30 en þetta verður fyrsti leikur Igor Tudor sem stjóri Tottenham.
Athugasemdir
banner