Elías Rafn hélt hreinu í sjötta sinn og Midtjylland á toppinn - Mikilvægt fyrsta mark Sigurðar

Elías Rafn er á toppnum í dönsku deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sigurður Bjartur Hallsson skoraði fyrsta mark sitt fyrir Merida sem reyndist sigurmarkið

Mynd: AD Merida

Elías Rafn Ólafsson hélt hreinu í sjötta deildarleiknum á þessu tímabili er Midtjylland vann 4-0 stórsigur á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Landsliðsmarkvörðurinn er að eiga gott tímabil hjá Midtjylland sem er komið í toppsæti deildarinnar með 45 stig.
Aðeins ein umferð er eftir þangað til deildinni verður skipt í tvo hluta og mun þá titilbaráttan ráðast.
Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg vann Helsingborg, 4-0, í fyrstu umferð í riðlakeppni sænska bikarsins. Elfsborg mætir einnig Sirius og Sundsvall í riðlinum.
Sverrir Ingi Ingason og félagar í Panathinaikos unnu 2-0 sigur á OFI Crete á erfiðum útivelli.
Blikinn lék allan leikinn í hjarta varnarinnar og er Panathinaikos aðeins þremur stigum frá Levadiakos sem situr í síðasta örugga Evrópusætinu.
Hjörtur Hermannsson var í vörninni hjá Volos sem tapaði fyrir Panseirraikos, 2-1.
Volos er án sigurs í síðustu sjö deildarleikjum og er sem stendur í 7. sæti með 26 stig.
Sigurður Bjartur Hallsson skoraði sigurmark Merida í 1-0 sigrinum á Cacereno í C-deildinni á Spáni.
Hann skoraði eina markið á 36. mínútu leiksins sem var hans fyrsta fyrir félagið.
Merida er í 5. sæti sem gefur þátttöku í umspil um sæti í B-deildina þegar 25 umferðir eru búnar.