22.02.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Spennandi slagur um norðurhluta London
Liverpool fer í Skírisskóg

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Englandsmeistarar Liverpool mæta til leiks klukkan 14:00 í dag þegar þeir heimsækja Nottingham Forest í úrvalsdeildinni.
Lærlingar Arne Slot unnu 3-0 gegn Brighton í enska bikarnum um síðustu helgi og mæta úthvíldir til leiks. Þeir eru í harðri baráttu um meistaradeildarsæti, með 42 stig eftir 26 umferðir.
Bikarmeistarar Crystal Palace taka á móti botnliði Wolves á meðan nýliðar Sunderland spila við Fulham, áður en stórleik dagsins ber að garði.
Þar eigast Tottenham og Arsenal við í slagnum um norður-London.
Tottenham er óvænt í fallbaráttu en Igor Tudor er nýtekinn við stjórnartaumunum og verður áhugavert að sjá viðbrögð leikmanna. Tudor er án margra lykilmanna vegna ótrúlegra meiðslavandræða í herbúðum félagsins.
Arsenal er aðeins með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir tvo jafnteflisleiki í röð á útivelli gegn Brentford og Wolves. Þetta er þriðji útileikur liðsins í röð í úrvalsdeildinni.
Leikir dagsins
14:00 Crystal Palace - Wolves
14:00 Sunderland - Fulham
14:00 Nott. Forest - Liverpool
16:30 Tottenham - Arsenal

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |