Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   sun 22. febrúar 2026 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Eze búinn að jafna Henry og Van Persie
Í fyrsta sinn sem Arsenal vinnur fimm úrvalsdeildarleiki í röð gegn Spurs
Mynd: EPA
Eberechi Eze skoraði tvennu í sannfærandi sigri Arsenal gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Hann hefur þar með skorað fimm mörk í tveimur leikjum gegn Tottenham á úrvalsdeildartímabilinu og tókst þannig að jafna goðsögnina Thierry Henry á mörkum skoruðum fyrir Arsenal gegn Tottenham í deildarkeppni.

Eze er þar með orðinn þriðji markahæsti leikmaður Arsenal gegn Tottenham síðan úrvalsdeildin var sett á laggirnar fyrir meira en 30 árum síðan. Hollendingurinn Robin van Persie, sem var hjá Arsenal í átta ár, tókst einnig aðeins að skora fimm mörk í deildarleikjum gegn Tottenham.

Robert Pires og Emmanuel Adebayor eru þeir leikmenn í úrvalsdeildarsögu Arsenal sem hafa skorað flest mörk gegn Tottenham. Pires með sjö mörk og Adebayor, sem skipti svo yfir til Tottenham síðar á ferlinum, sex.

Þetta var fimmti sigur Arsenal í röð gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni en það hefur aldrei áður gerst í sögu keppninnar.

Þetta var jafnframt stærsti sigur Arsenal á útivelli gegn Tottenham í sögu úrvalsdeildarinnar.

Til gamans má geta að Eze skoraði þrjú mörk gegn Tottenham þegar hann var ennþá leikmaður Crystal Palace og hefur því í heildina skorað átta úrvalsdeildarmörk gegn þessum erkifjendum Arsenal.
Slapp
Athugasemdir
banner