Fotbolti.net
22.02.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Fiorentina fjórum stigum frá Evrópu - Emilía kom inn í jafntefli

Fiorentina fjórum stigum frá Evrópu - Emilía kom inn í jafntefli
Canon

Mynd: Instargam

Hertz
Síðustu leikjum dagsins er lokið hjá Íslendingunum sem leika erlendis þar sem Íslendingalið Fiorentina náði í dýrmæt stig í efstu deild á Ítalíu.
Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliðinu og kom Iris Ómarsdóttir inn af bekknum en Katla Tryggvadóttir var ónotaður varamaður.

Fiorentina vann 3-2 gegn Sassuolo og er með 24 stig eftir 15 umferðir, aðeins fjórum stigum frá sæti í evrópukeppni.

Á sama tíma spilaði Emilía Kiær Ásgeirsdóttir síðustu 20 mínúturnar í 2-2 jafntefli hjá RB Leipzig gegn Essen í efstu deild í Þýskalandi.

Leipzig siglir lygnan sjó með 21 stig eftir 19 umferðir, níu stigum fyrir ofan Essen sem er í fallsæti.

Fiorentina 3 - 2 Sassuolo
1-0 E. Severini ('46)
1-1 N. Eto ('55)
2-1 S. Bredgaard ('60)
3-1 E. Severini ('68, víti)
3-2 D. Sabatino ('95, víti)

Essen 2 - 2 Leipzig
1-0 R. Maier ('2)
1-1 D. Boboy ('49)
1-2 M. Schimmer ('71)
2-2 E. Herzog, sjálfsmark ('96)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.