Wesley Fofana og Hannibal Mejbri voru í byrjunarliðum Chelsea og Burnley þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Fofana fékk tvö gul spjöld og var rekinn af velli á 72. mínútu í stöðunni 1-0 fyrir Chelsea, en lokatölur urðu 1-1.
Eftir rauða spjaldið rigndi rasískum skilaboð yfir Fofana á samfélagsmiðlum sem komu langflest frá reiðum stuðningsmönnum Chelsea. Fofana tók skjáskot af nokkrum þeirra og birti fyrir fylgjendur sína.
Hannibal í liði Burnley fékk einnig send rasísk skilaboð eftir leikinn og tjáði sig á samfélagsmiðlum. „Árið er 2026 en hlutirnir breytast aldrei. Þessu fólki er aldrei refsað," skrifaði Hannibal.
„Þið búið til alskonar herferðir gegn rasisma en í raunveruleikanum þá gerir enginn neitt."
Chelsea, Burnley og enska úrvalsdeildin hafa öll tjáð sig um málið og segjast líta það alvarlegum augum. Svona mál hafa ítrekað verið að koma upp í fótboltaheiminum, nú síðast í vikunni þegar Gianluca Prestianni virðist hafa kallað Vinícius Júnior apa í leik Benfica gegn Real Madrid.
Kynþáttafordómarnir á yfirstandandi tímabili í úrvalsdeildinni byrjuðu strax á fyrsta degi, þegar dómarinn þurfti að stöðva opnunarleik tímabilsins vegna rasískra kalla úr stúkunni á Anfield sem beindust að Antoine Semenyo.
Newcastle setti sig þá í samband við lögreglu eftir að Joe Willock, miðjumaður liðsins, fékk ógeðfelldar hótanir á samfélagsmiðlum og svo varð Mathys Tel, sóknarleikmaður Tottenham, einnig fyrir barðinu á fordómum á netinu eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu í úrslitaleik evrópska ofurbikarsins síðasta sumar.
Talsvert fleiri úrvalsdeildarleikmenn hafa fundið fyrir fordómum bæði þegar þeir eru að spila fótbolta og í gegnum samfélagsmiðla.
Athugasemdir

