Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 17:49
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Ungir Skagamenn völtuðu yfir Völsung
Mynd: ÍA
Völsungur 1 - 5 ÍA
1-0 Akil Rondel Dexter De Freitas ('6)
1-1 Matthías Daði Gunnarsson ('17)
1-2 Gabríel Snær Gunnarsson ('72)
1-3 Matthías Daði Gunnarsson ('76)
1-4 Gabríel Snær Gunnarsson ('80)
1-5 Matthías Daði Gunnarsson ('93)

Völsungur tók á móti ungu liði ÍA í eina leik dagsins í efstu deild Lengjubikarsins og náðu heimamenn forystunni snemma leiks þegar Akil De Freitas skoraði.

Matthías Daði Gunnarsson, fæddur 2006, jafnaði metin fyrir Skagamenn svo staðan var 1-1 í hálfleik, en elstu leikmenn í byrjunarliði ÍA voru fæddir 2004 og sá yngsti 2009.

Gabríel Snær Gunnarsson, sonur Gunnars Heiðars Þorvaldssonar sem er fæddur 2008, kom inn af bekknum í síðari hálfleik og tvöfaldaði forystuna. Hann og Matthías Daði skiptust svo á að skora þar til í uppbótartíma var komið, svo lokatölur urðu 1-5.

Matthías Daði endaði á að setja þrennu og Gabríel Snær tvennu í stórsigrinum.

Skagamenn eru með 7 stig eftir 4 umferðir í Lengjubikarnum.

Völsungur er án stiga eftir 2 umferðir og með markatöluna 1-15.

Til gamans má geta að meðalaldur byrjunarliðs ÍA í dag var 19 ár og komu fjórir 16 ára leikmenn við sögu. Þá spilaði Erik Tobias Sandberg sínar fyrstu mínútur eftir löng og erfið meiðsli.

ÍA tekur á móti Val í næstu umferð Lengjubikarsins. Liðin eigast við í Akraneshöllinni fimmtudagskvöldið.
Athugasemdir
banner
banner
banner