Fotbolti.net
22.02.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Pep gefur leikmönnum þriggja daga frí

Hvetur þá til að drekka kokteila

Pep gefur leikmönnum þriggja daga frí
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola var ánægður eftir dýrmætan sigur gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Lærlingar hans í Manchester City spiluðu góðan leik til að standa uppi sem sigurvegarar og minnka bilið í titilbaráttunni niður í tvö stig. Þetta var þriðji sigur Man City í þremur leikjum gegn Newcastle á nýju ári eftir að hafa unnið bæði heima og úti í undanúrslitum deildabikarsins. Newcastle hafði þó betur í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni á St. James' Park í nóvember.

Liðin mætast svo aftur í 16-liða úrslitum enska bikarsins og mun sá leikur fara fram á St. James' Park. Þá fær Newcastle tækifæri til að hefna fyrir síðustu þrjár innbyrðisviðureignir.

„Newastle er rosalega sterkt lið og ég er virkilega ánægður með sigurinn, það verður algjör martröð að spila aftur við þá í bikarnum eftir nokkrar vikur. Við verðum að vera ennþá betri heldur en þetta ef við viljum vinna úrvalsdeildartitilinn. Við erum með mikið af nýjum leikmönnum í hópnum sem hafa ekki reynslu af því að vinna deildina og ekki get ég spilað leikina. Við verðum að bæta okkur ef við viljum berjast um úrvalsdeildartitilinn," sagði Guardiola.

„Ég sagði við strákana að njóta næstu þriggja daga, ég sagði þeim að drekka mikið af kokteilum og njóta lífsins. Eftir það er alvöru æfing og svo leikur gegn Leeds og ég veit hversu erfiður leikur það verður. Ef það kemur eitthvað bakslag þá höldum við áfram á okkar braut, við gefumst aldrei upp. 10 eða 11 leikir eru mjög mikið í úrvalsdeildinni, það getur allt gerst."

Pep hrósaði O'Reilly og Erling Haaland sérstaklega fyrir þeirra þátt í sigrinum.

„Strákarnir voru frábærir, Erling var svo mikilvægur. Við hefðum ekki getað gert þetta án hans. Þetta eru mikilvæg stig og strákarnir eiga skilið að fá þrjá daga í frí áður en þeir mæta til leiks í næsta bardaga gegn Leeds.

„Nico var mjög mikilvægur fyrir okkur í dag. Hann er loksins byrjaður að spila í sinni eigin stöðu og hann gefur okkur mikinn líkamlegan styrk á miðjunni. Hann hefur alla tíð spilað þessa stöðu og er með ótrúlega aðlögunarhæfileika sérstaklega miðað við aldur. Ég er mjög stoltur að leikmenn eins og Nico, Phil (Foden) og Rico (Lewis) hafi komið úr akademíu félagsins."


O'Reilly er 20 ára gamall og hefur tekið þátt í 60 keppnisleikjum fyrir City og tveimur A-landsleikjum fyrir England eftir að hafa spilað upp yngri landsliðin.

England: Man City tveimur stigum frá Arsenal
TENGT EFNI

England: Man City tveimur stigum frá Arsenal

Pep gefur leikmönnum þriggja daga frí
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.