Vítor Pereira þjálfari Nottingham Forest var svekktur eftir dramatískt tap á heimavelli gegn Englandsmeisturum Liverpool í dag.
Heimamenn í Nottingham voru sterkara liðið í fyrri hálfleik en Liverpool tók yfir leikinn í þeim síðari. Staðan hélst þó markalaus allt þar til mjög seint í leiknum, eða rúmri mínútu framyfir uppgefinn uppbótartíma. Það var þá sem Alexis Mac Allister fylgdi skallatilraun hjá liðsfélaga sínum eftir með marki af stuttu færi.
„Við erum mjög svekktir. Við spiluðum frábæran fyrri hálfleik, við áttum að skora tvö eða þrjú mörk og gáfum á sama tíma engin færi á okkur. Við vissum að seinni hálfleikurinn yrði erfiðari útaf þreytu, það eru bara þrír dagar síðan við fórum í langt ferðalag til að spila við Fenerbahce," sagði Pereira eftir lokaflautið.
„Við vorum ekki með orkuna til að pressa almennilega í seinni hálfleik en þrátt fyrir það áttum við að minnsta kosti skilið eitt stig úr þessum leik. Þetta er mjög ósanngjarnt tap."
Pereira, sem er nýlega tekinn við stjórnartaumunum hjá Forest, er ósáttur með dekkningu sinna manna í sigurmarkinu.
„Okkar stærstu menn verða að dekka þeirra stærstu menn, við verðum að passa betur upp á þetta. Við verðum að dekka rétta menn. Það er synd að tapa leiknum útaf svona smáatriði. Við hefðum verið svekktir með eitt stig, við áttum alls ekki skilið að fara stigalausir úr þessum leik."
Pereira segist vera ánægður að hafa tekið við starfinu hjá Forest. Hann telur sig búa yfir mjög sterkum leikmannahópi og hefur engar efasemdir um að liðið muni forðast fallsvæðið í vor.
„Ég er ánægður með leikmannahópinn. Strákarnir eru hæfileikaríkir og metnaðarfullir. Ég er sannfærður um að við munum ekki falla úr deildinni ef við höldum áfram að spila svona vel."
Athugasemdir



