Fotbolti.net
22.02.26 - 23:09
Ívan Guðjón Baldursson

Veit núna hvernig á að ná því besta úr Eze

Eze og Saka voru saman í byrjunarliðinu gegn Tottenham. Þeir vonast til að fara saman með enska landsliðinu á HM í sumar.

Eze og Saka voru saman í byrjunarliðinu gegn Tottenham. Þeir vonast til að fara saman með enska landsliðinu á HM í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta svaraði spurningum eftir sannfærandi sigur Arsenal í nágrannaslag gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Eberechi Eze var í byrjunarliðinu og skoraði sín fyrstu mörk fyrir Arsenal síðan hann setti þrennu gegn Tottenham í lok nóvember.

„Það sást að Eze hafði eitthvað að sanna í þessum leik. Hann var ósáttur með mig útaf því að ég tók hann úr byrjunarliðinu um daginn," sagði Arteta meðal annars að leikslokum.

„Hann er kannski ósáttur með einhverjar ákvarðanir sem ég hef tekið, en ég held ég sé byrjaður að skilja hvernig við förum að því að ná því besta úr honum."

Arsenal borgaði um 65 milljónir punda til að kaupa Eze úr röðum Crystal Palace í fyrrasumar eftir að hann hafði verið meðal allra bestu leikmanna liðsins á undanförnum árum. Hann er enn í aðlögunarferli fyrir nýtt hlutverk hjá Arsenal en frammistaða hans í dag lofaði afar góðu.

Arteta: Titilbaráttan verður spennandi þar til í lokin
TENGT EFNI

Arteta: Titilbaráttan verður spennandi þar til í lokin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.